Kennslan er lifandi og gagnvirk, í litlum hópi á Zoom. Engin reynsla nauðsynleg.
Eftir fjögur kvöld getur þú
- spilað yfir 30 hljóma
- skipt á milli hljóma í takt
- spilað algeng ásláttarmynstur og notað capo
- spilað fyrstu lögin þín frá upphafi til enda
Hvernig fer kennslan fram?
Þú þarft gítar og tölvu eða spjaldtölvu með myndavél. Nokkrum dögum fyrir fyrsta kvöldið hittumst við stutta stund til að stilla hljóð og mynd. Glærur og æfingar hvers kvölds eru á netinu svo þú getur fylgt eftir heima.
Dagsetningar
Miðvikudagarnir 20. og 27. janúar, 3. og 10. febrúar 2027, kl. 18:30–20:30.
