Kennslan er lifandi og skemmtileg, í litlum hópi þar sem við spilum saman. Engin reynsla nauðsynleg.
Eftir fjögur kvöld getur þú
- spilað yfir 30 hljóma
- skipt á milli hljóma í takt
- spilað algeng ásláttarmynstur og notað capo
- spilað fyrstu lögin þín frá upphafi til enda
Hvernig fer kennslan fram?
Þú kemur með gítarinn þinn, ég sé um allt annað. Glærur og æfingar hvers kvölds eru á netinu svo þú getur fylgt eftir heima.
Staður og dagsetningar
Nýsköpunarsetrið í Hafnarfirði, oft þekkt sem gamli Lækjarskólinn. Fimmtudagarnir 21. og 28. janúar, 4. og 11. febrúar 2027, kl. 18:30–20:30.

