Gítarskólinn

Persónuverndarstefna

Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig við umgöngumst þær persónuupplýsingar sem við geymum um þig og hvaða réttindi þú átt varðandi upplýsingarnar. Pixelmedia ehf er eigandi gitarskolinn.is

Við heitum því að gæta fyllsta trúnaðar og virða rétt þinn varðandi meðferð persónuupplýsinga um þig. Okkur er umhugað um persónuvernd og við viljum að þú vitir hvernig við meðhöndlum persónuupplýsingar um þig. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu persónuupplýsinga sem falla undir stefnuna.

Vafrakökur

Fótspor eða vafrakökur eru gögn sem send eru frá vefsíðu og eru geymd í minni vafra.


Vefverslun krefst vafrakaka til að geta virkað sem skyldi þar sem vefsíður eru ríkisfangslausar (þeir muna ekki upplýsingar um notendur frá einni innri síðu til annarrar). Aðrar vafrakökur eru notaðar til að fylgjast með aðgerðum notenda á einum vef eða á mörgum vefjum til að safna upplýsingum um notkun eða bera kennsl á áhugamál og kortleggja hegðun til að geta boðið viðeigandi auglýsingar.

Hér að neðan er lýsing á þeim vafrakökum sem eru í notkun.

Nauðsynlegar vafrakökur

Nauðsynlegar vafrakökur eru notaðar til að láta vefsíðu virka á réttan hátt, þær eru almennt ekki notaðar til að fylgjast með og er ekki deilt á milli vefja.

Algengasta nauðsynlega aðgerðin sem framkvæmd er með vafrakökum er auðkenning notenda. Þegar þú ratar inn á vefsíðu er vafrakak geymd í vafranum þínum þar sem gögn eru notuð af vefnum til að muna hver er á ferðinni þegar þú ferð á aðra innri síðu eða endurnýjar síðuna.

Fótspor eru einnig notuð þannig að vefur veit hvað er í innkaupakörfunni þinni, hvaða vörur er nýbúið að skoða og fleira.

Greiðslugátt TEYA

Greitt er í gegnum greiðslugátt TEYA og eru því engar kortaupplýsingar sem vistast á gitarskolinn.is. Upplýsingar sem safnast í körfuna um vörur og kaupandann er deilt með TEYA til að geta klárað kaup og framfylgt lögum um rafræn viðskipti.

Gjafir

Þegar námskeið er keypt sem gjöf skráum við nafn þess sem fær gjöfina og, ef óskað er eftir því að gjafabréfið sé sent beint til viðkomandi, netfang viðkomandi. Þessar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að útbúa og afhenda gjafabréfið og til að skrá viðkomandi á námskeiðið.

Upptökur til endurgjafar

Á sumum námskeiðum getur þú sent okkur upptöku af eigin spilamennsku og fengið endurgjöf. Upptakan og svör kennarans eru geymd hjá myndbandaþjónustunni Gumlet og eingöngu kennarinn sér þær. Þeim er eytt sjálfkrafa 60 dögum eftir að þær eru sendar. Við notum upptöku aldrei annars staðar, t.d. í kennsluefni, nema með þínu leyfi. Ef þú vilt að upptöku sé eytt fyrr máttu senda póst á gitarskolinn@gitarskolinn.is.