Jólagjöfin í ár
Gefðu tónlist í jólagjöf
Gjöf sem endist lengur en jólin. Gjafabréfið kemur strax í tölvupósti, tilbúið til prentunar, og gildir í fjögur ár.

Svona virkar þetta
1
Veldu gjöf
Námskeið, einkatíma, netnámskeið eða upphæð.
2
Nafn og kveðja
Skráðu nafn þess sem fær gjöfina og persónulega kveðju ef þú vilt.
3
Kemur strax
Gjafabréfið berst í tölvupósti um leið og greiðslan fer í gegn. Viðtakandinn velur svo sjálfur dagsetningu.
Gjafirnar
Veldu gjöf
Staðnámskeið og Zoom-námskeið hefjast reglulega, fyrst í janúar.
Fyrir byrjendur
Grunnnámskeið 1
Fjögur kvöld með kennara, á staðnum eða á Zoom. Viðtakandinn velur dagsetningu sjálfur.
29.900 kr.
Gefa þettaFramhald
Grunnnámskeið 2: ásláttur og taktur
Fyrir þau sem kunna grunnhljómana og vilja bæta taktinn og ásláttinn.
29.900 kr.
Gefa þettaPersónuleg kennsla
Einkatímar á netinu
Sniðnir að markmiðum hvers og eins. Við finnum tíma saman.
Heima, á eigin hraða
Netnámskeið
Kennslumyndbönd og undirspil sem hægt er að nota aftur og aftur.
Viðtakandinn velur
Gjafabréf með upphæð
Gildir á allt hjá Gítarskólanum. Það sem ekki er notað geymist á kóðanum.
Ekki viss hvað hentar?
Hefur viðkomandi spilað á gítar áður?
Gjafabréf með upphæð hentar alltaf. Viðtakandinn velur sjálfur.
Eða sendu mér línu og ég hjálpa þér að finna gjöf sem hittir í mark.
Algengar spurningar
Hvenær kemur gjafabréfið?
Strax eftir greiðslu, í tölvupósti, líka á Þorláksmessu og aðfangadag. Þú velur hvort það kemur til þín eða beint til viðtakandans.
Hvað ef dagsetningarnar henta ekki?
Viðtakandinn velur dagsetningu þegar gjafabréfið er virkjað. Ef ekkert námskeið hentar þá fer viðkomandi á biðlista og fær að vita þegar næsta námskeið opnar.
Hversu lengi gildir gjafabréfið?
Í fjögur ár frá útgáfudegi. Dagsetningin stendur á gjafabréfinu.
Get ég prentað gjafabréfið út?
Já. Það kemur sem PDF í A4 og er að mestu hvítt, svo það sparar blek. Það má líka áframsenda það eða geyma í símanum.
Hvað ef viðkomandi á ekki gítar?
Það er algengt. Hafðu samband og ég gef ráð um hentugan fyrsta gítar.
Get ég skipt um gjöf?
Já, hafðu samband og við finnum lausn. Gjafabréf fyrir námskeið má til dæmis nota á annað námskeið eða einkatíma af sama verðgildi.
„Ég hafði ekki snert gítarinn í 20 ár og hélt að þetta væri gleymt og grafið. Námskeiðið hjá Bent var akkúrat það sem vantaði. Nú er spilað á hverju kvöldi!“
Nemandi á grunnnámskeiði · nafnlaus könnun