Tónsmiðjan er til fyrir þig sem vilt spila reglulega með æfingum, lögum og stuðningi frá öðrum gítarleikurum.
Tónsmiðjan er nýtt verkefni sem fór í loftið í janúar 2026.
Verkefnið er í þróun í nánu samtali við stofnfélaga.
Þér gefst tækifæri til að slást í hópinn og taka þátt í að móta bæði verkefnið og samfélagið.
Tónsmiðjan er vettvangur fyrir þig sem langar gera gítarinn að föstum punkti í tilverunni og ná góðum tökum á hljóðfærinu.
Hér hittumst við til að spila lög og deila áhuganum, í stað þess að æfa ein í hljóði. Við vitum að það getur verið erfitt að halda dampi einn á báti. Þess vegna leggjum við áherslu á samfélag og aðhald.
Þú færð skýr verkefni sem gefa þér ástæðu til að grípa í hljóðfærið. Við hjálpum þér að ná betra valdi á gítarnum í gegnum leikgleði og tónlist – ekki stífar æfingar.
Hvað er innifalið í Tónsmiðjunni ?
🎶 Tvö ný lög í mánuði:
Við förum yfir ný lög reglulega með myndböndum, nótum og undirspili. Með hverju lagi fylgir myndband með ábendingum hvernig væri gott að spila lagið tæknilega og gefið þér góð ráð við að ráða við það, skref fyrir skref.
🎯 Verkefni og tilgangur:
Vikulegir punktar/verkefni sem gefa þér stefnu og halda þér við efnið.
🤝 Samfélag og spjall:
Þú ert ekki ein/n. Í gegnum Q&A og spjall færðu stuðning frá öðrum sem eru á sömu vegferð.
🎸 Aukin færni á gítarinn og öryggi:
Með því að spila reglulega og markvisst eykur þú færni þína og öryggi á hljóðfærinu.
Algengar spurningar og svör við þeim
Hér finnur þú svör við algengustu spurningunum um Tónsmiðjuna. Ef eitthvað er óljóst, hafðu endilega samband.
Hvað er Tónsmiðjan ?
Tónsmiðjan er lifandi kennsluumhverfi fyrir gítarleik þar sem nýtt efni bætist reglulega við.
Þú færð stuttar kennslueiningar, verkefni og tónlist sem hjálpar þér að halda gítarleiknum í gangi — án pressu.
Fyrir hvern er Tónsmiðjan ?
Tónsmiðjan er sérstaklega hugsuð fyrir:
fullorðna nemendur, hvort sem eru byrjendur eða aðra sem hafa einhvern grunn
fólk sem lærði áður en tók langa pásu
þá sem kunna grunninn en vantar rútínu og framvindu
Þarf ég að vera algjör byrjandi ?
Nei alls ekki!
Það væri betra ef þú kynnir nokkra grunnhljóma og geta haldið á gítarnum.
Margir nota Tónsmiðjuna samhliða grunnnámskeiði (t.d. Gítar grunnur 1), en það er ekki skilyrði.
Hvað fæ ég aðgang að ?
Þú færð aðgang að:
öllum kennslueiningum sem eru komnar inn
nýju efni sem bætist við reglulega
verkefnum og play-along nálgun
kennsluumhverfi sem er byggt upp í litlum, aðgengilegum skrefum
Hversu mikinn tíma þarf ég að setja í þetta ?
Flestir æfa 10–30 mínútur í senn, 2–4 sinnum í viku.
Þú ræður hraðanum sjálfur — þetta á að passa inn í raunverulegt líf.
Hvenær fæ ég aðgang ?
Þú færð aðfang strax.
Skráning fer fram á Teachable og aðgangur virkjast um leið og greiðsla gengur í gegn.
Hvernig virkar aðgangur og greiðsla?
Þú færð mánaðarlegan aðgang að Tónsmiðjunni.
Greitt er mánaðarlega og engin binding.
Er þetta í beinni kennslu ?
Nei, kennslan er upptöku-miðuð svo þú getir lært þegar það hentar þér.
Sumir mánuðir geta þó innihaldið valkvæð samskipti eða viðburði, en það er aldrei skylda.
Hentar þetta ef ég hef lítið sjálfstraust í spilamennsku ?
Já — sérstaklega þá.
Tónsmiðjan er byggð upp til að draga úr pressu, ekki auka hana.
Lítil skref, skýr verkefni og enginn samanburður.
Hvað ef þetta hentar mér ekki ?
Þá einfaldlega hættir þú.
Engin binding og engar skuldbindingar.
Get ég verið í Tónsmiðjunni og öðrum námskeiðum samtímis ?
Já heldur betur!
Margir nota Tónsmiðjuna sem stoð við önnur námskeið til að halda rútínu og æfingaflæði.
Hver kennir í Tónsmiðjunni ?
Bent Marinósson, gítarkennari og tónlistarmaður með áralanga reynslu af kennslu fyrir fullorðna nemendur — sérstaklega þá sem vilja læra á sínum hraða.
Um aðgang, kostnað og stofnfélagar
Tónsmiðjan veitir mánaðarlegan aðgang að lifandi kennsluumhverfi fyrir gítarleik, þar sem nýtt efni bætist reglulega við.
Skráning fer fram á Teachable og aðgangur virkjast strax.
Greitt er mánaðarlega, verðið er skýrt sýnt við skráningu og engin binding — þú getur hætt hvenær sem er.
Stofnfélagar
Í upphafi er Tónsmiðjan opin takmörkuðum fjölda stofnfélaga.
Stofnfélagar fá aðgang á betra verði, og það verð helst óbreytt á meðan aðgangur þeirra er virkur.
Þeir fá aðgang frá byrjun og taka þátt í uppbyggingu verkefnisins.
Þegar hámarksfjölda stofnfélaga er náð, býðst slíkur aðgangur ekki lengur, og verð eða skilmálar geta breyst síðar fyrir nýja aðila.