Þetta námskeið er rökrétt næsta skref eftir Grunnnámskeið 1. Margir kunna þá orðið hljómana en eiga erfitt með ásláttinn og að halda takti, og það er einmitt það sem þetta námskeið snýst um. Aðaláherslan er á ásláttinn og rytmann. Við hlustum á lög og greinum taktinn í þeim, sem hjálpar okkur að finna réttan áslátt.
Við vinnum líka með dýnamík, spilum veikt og sterkt til að gefa spilamennskunni meira líf.
Þú þarft ekki að hafa farið á Grunnnámskeið 1, en þú ættir að kunna helstu opnu hljómana (G, C, D, Em, Am o.fl.) og geta skipt á milli þeirra, jafnvel þótt það gangi stundum hægt.
Með námskeiðinu færðu aðgang að netsvæði með glærum og aukaefni, svo þú getir æft þig heima á milli tíma.
Hvar: Risið hjá Ferðafélagi Íslands, Mörkinni 6
Hvenær: Þriðjudagarnir 17. og 24. nóvember og 1. og 8. desember, kl. 18:30–20:30
Verð: 29.900 kr. (25.900 kr. fyrir félaga í FÍ, nota afsláttarkóðann: fifelagi)
