Dreymir þig um að kunna á ukulele?
Ukulele grunnnámskeiðið er hannað sérstaklega fyrir byrjendur. Þú þarft enga fyrri reynslu af hljóðfæraleik né nótnalestri. Við förum yfir grunnatriðin skref fyrir skref þannig að þú náir góðum tökum á hljóðfærinus.
Hvað er innifalið í námskeiðinu?
Námskeiðið er yfirgripsmikið en sett upp í þægilegum bitum svo þú getir lært þegar þér hentar:
- 13 Kennslustundir: Skipulagt ferli sem leiðir þig áfram.
- +40 Kennslumyndbönd: Ítarlegar útskýringar og sýnikennsla.
- 22 Hljómar: Lærðu algengustu gripin sem opna dyrnar að þúsundum laga.
- 12 Lög: Við lærum lög sem gaman er að spila og syngja.
- Gögn: Hljómablöð, textar og æfingar fylgja með.
Æfðu þig með hljómsveit!
Það sem gerir þetta námskeið einstakt er undirspilið. Þú situr ekki bara ein/n að æfa þig, heldur færðu að spila lögin við undirleik hljómsveitar. Það gerir æfinguna mun skemmtilegri, hjálpar þér að halda takti og gefur þér tilfinninguna að vera að spila í bandi strax í byrjun.
Hvernig virkar þetta?
- Aðgangur: Við útbúum aðganginn þinn handvirkt og sendum þér upplýsingarnar í tölvupósti innan 24 klukkustunda frá skráningu.
- Í heilt ár: Þú hefur aðgang að námskeiðinu í 12 mánuði frá því aðgangurinn er opnaður. Þú getur horft aftur og aftur þar til gripin sitja föst.
- Á þínum hraða: Engin pressa. Lærðu þegar þú hefur tíma.
- Beinn aðgangur að kennara: Ef þú festist eða ert með spurningar getur þú sent línu beint á kennarann.
Ertu tilbúin/n til að byrja? Skráðu þig núna og við græjum aðganginn fyrir þig!
Algengar spurningar
Hversu lengi hef ég aðgang að námskeiðinu?
Aðgangur er veittur í eitt ár frá kaupdegi.
Hvenær fæ ég aðgang?
Aðgangur er að öllu jöfnu veittur innan 24 klst.
Á hvaða tæki virkar námskeiðið?
Námskeiðið virkar á tölvu, síma og spjaldtölvu.
Viltu gefa þetta námskeið sem gjafabréf?
Það er lítið mál! Skráðu nafnið á þeim sem á að fá gjöfina í reitinn „Skýring með pöntun“ (Order notes) í kaupferlinu, en skráðu þitt netfang sem kaupanda. Við sendum gjafabréfið svo á þig innan 24 klst.


