Miðvikudaginn 1. júlí kl. 18:00 verður haldið opið samspilskvöld í Heiðmörk þar sem öllum sem hafa gaman af gítarleik og söng er boðið að taka þátt.
Markmiðið er einfalt – að hittast, njóta útiverunnar og eiga notalega kvöldstund þar sem við spilum og syngjum saman. Spiluð verða 10–15 auðveld lög eftir stemningu og lögin verða valin þannig að sem flestir geti tekið þátt. Það skiptir engu máli hvort þú sért byrjandi eða lengra kominn. Þeir sem vilja frekar syngja með eða einfaldlega njóta stemningarinnar eru einnig hjartanlega velkomnir.
Samspilið fer fram við Elliðavatnsbæ. Ef veður og aðstæður leyfa finnum við okkur góðan stað í skóginum, en ef veðrið verður ekki með okkur í liði færum við okkur nær húsinu eða innandyra.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Gítarskólans, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Hugmyndin er að sameina tónlist, útivist og góða samveru í fallegu umhverfi Heiðmerkur.
Þátttaka er ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Nokkrum dögum fyrir viðburðinn fá allir þátttakendur sent PDF sönghefti með lögunum, sem hægt er að prenta út eða hafa í síma eða iPad. Gott er að taka með sér fellistól, koll eða teppi til að sitja á.
Skráning
https://gitarskolinn.is/spilum-saman-i-heidmork-1-juli/
Við hlökkum til að sjá sem flesta í Heiðmörk og vonum að þetta verði fyrsta samspilskvöldið af mörgum.


