Aldrei of seint að byrja – Frábær stemning á uppseldu námskeiði í Hafnarfirði!

Grunnnámskeiðinu í gítarleik, sem haldið var í Hafnarfirði 5. til 26. maí, er nú lokið og tókst það vægast sagt vel. Námskeiðið seldist upp og það var ótrúlega gaman að sjá þennan fjölbreytta hóp stilla saman strengi. Stemningin var hreinlega frábær frá fyrsta degi til þess síðasta!

Það sem gladdi mig sérstaklega við þennan hóp var að meðalaldurinn var í kringum 50 ár. Margir mættu til að dusta rykið af gítarnum eftir langt hlé, aðrir voru að stíga sín alveg fyrstu skref og sumir voru loksins að láta gamlan draum rætast eftir að hafa beðið eftir „rétta tímanum“. Þetta sýndi okkur svart á hvítu að það er aldrei of seint að byrja.

Markmiðið með námskeiðunum okkar er einmitt að gera gítarleik aðgengilegan og skemmtilegan – án pressu og án krafna um tónlistargrunn. Við tókum þetta á rólegu nótunum, fórum yfir helstu hljómana, fundum taktinn og spiluðum einföld lög saman.  mikil áhersla var lögð á uppbyggingu tónlistar, mismunandi takttegundir og hvernig tónlist virkar í raun.  Aðalatriðið er alltaf að fólk fái sjálfstraust til að taka upp gítarinn heima í stofu og njóta þess að spila, og þessi hópur fór klárlega með það nesti heim.

Vegna mikillar eftirspurnar stefnum við á fleiri námskeið í Hafnarfirði, bæði í sumar og haust. Fylgstu með hér á gitarskolinn.is (eða skráðu þig á póstlistann okkar) til að missa ekki af næstu skráningu!

Látum gítardrauminn rætast!

Það er aldrei of seint að byrja. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða vilt rifja upp gamla takta, þá erum við hér til að aðstoða. Við eigum réttu lausnina fyrir þig til að ná tökum á gítarnum.

Næsta hópnámskeið

Hefst 5. maí

Gítarskólinn býður upp á margvísleg netnámskeið, hér eru nokkur vinsæl námskeið sem við bjóðum upp á:

Gítar grunnnámskeið 1

Traustur grunnur í gítarleik.
20 kennslustundir • 20+ hljómar • 20+ lög og æfingar • 65+ myndbönd.

Gítar þvergrip

Næsta skref eftir grunnnámið.
Þvergrip kennd í 14 hlutum með æfingum, lögum og 23 kennslumyndböndum.

Ukulele  grunnnámskeið

Grunnnámskeið í ukulele með 13 kennslustundum, 22 hljómum og 12+ lögum.
Æft við undirleik hljómsveitar með stuðningi úr 40 kennslumyndböndum.