Grunnnámskeiðið í gítarleik, sem hófst 5. maí s.l. í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn (gamla Lækjarskólanum) í Hafnarfirði, seldist upp og hefur farið vægast sagt vel af stað. Námskeiðið stendur til 26. maí og það hefur verið ótrúlega gaman að sjá þennan fjölbreytta hóp stilla saman strengi. Stemningin hefur verið frábær frá fyrsta degi!
Það sem hefur glatt mig sérstaklega er að meðalaldurinn á þessu námskeiði er í kringum 50 ár. Margir eru að dusta rykið af gítarnum eftir langt hlé, aðrir eru að stíga sín alveg fyrstu skref og sumir eru loksins að láta gamlan draum rætast eftir að hafa beðið eftir „rétta tímanum“. Þetta sýnir okkur svart á hvítu að það er aldrei of seint að byrja.
Markmiðið með námskeiðunum er einmitt að gera gítarleik aðgengilegan og skemmtilegan – án pressu og án krafna um tónlistargrunn. Við tökum þetta á rólegu nótunum, förum yfir helstu hljómana, finnum taktinn og spilum einföld lög saman. Aðalatriðið er að fólk fái sjálfstraust til að taka upp gítarinn heima í stofu og njóta þess að spila.
Vegna mikillar eftirspurnar stefnum við á fleiri námskeið í Hafnarfirði, bæði í sumar og haust. Fylgstu með hér á gitarskolinn.is (eða skráðu þig á póstlistann okkar hér neðar) til að missa ekki af næstu skráningu!