
Spilum og syngjum saman í Heiðmörk 1. júlí
Opið samspilskvöld verður haldið í Heiðmörk Miðvikudaginn 1. júlí kl. 18:00 í samstarfi Gítarskólans, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Spiluð verða 10–15 auðveld lög og allir eru velkomnir, hvort sem þeir vilja spila, syngja með eða njóta stemningarinnar. Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg svo hægt sé að senda þátttakendum sönghefti fyrirfram.





