5 mínútna gítaræfing fyrir upptekið fólk

Klukkan er hálfátta á þriðjudagskvöldi. Kvöldmaturinn er búinn, uppþvottavélin malar, einhver þarf að fá aðstoð við heimanám og pósthólfið er sneisafullt af hlutum sem „þurfa bara smá svar“. Gítarinn stendur út í horni og horfir á þig með ásökunaraugum. Þú ætlaðir að æfa þig í klukkutíma í dag. Svo varð það hálftími. Svo korter. Og nú er spurningin hvort það taki því yfirleitt að taka hann upp.
Já. Það tekur því svo sannarlega.
Er fimm mínútur ekki bara grín??
Nei, því það er miklu betra að æfa sig í fimm mínútur á hverjum degi en að taka tveggja tíma törn einu sinni í viku. Fingurnir læra af endurtekningu, ekki af hetjuskap. Fimm mínútur á dag gera yfir hálfan klukkutíma á viku, og það sem meira er, gítarinn verður hluti af deginum í stað þess að vera verkefni sem bíður í horninu og veldur samviskubiti. Hér er einföld æfing sem passar í tímann sem það tekur pastað að sjóða.
Mínúta 1: Stilltu og hitaðu upp
Stilltu gítarinn með appi eða stillitæki (tuner). Settu svo vísifingur, löngutöng, baugfingur og litlafingur á fyrstu fjögur böndin á einum streng og spilaðu nóturnar hægt, ein í einu, og færðu þig svo yfir á næsta streng. Þetta vekur fingurna og minnir heilann á hvar gítarhálsinn er.
Mínúta 2: Hljómaskipti
Veldu tvo hljóma sem þér finnst erfitt að skipta á milli, til dæmis G og C eða D og Em. Skiptu á milli þeirra eins oft og þú getur í eina mínútu, hægt og rólega, og teldu hversu mörg skipti þú náðir. Skrifaðu töluna niður og reyndu að bæta hana á morgun. Þetta er ein besta æfing sem til er, og það er ótrúlega gaman að sjá töluna hækka viku eftir viku.
Mínúta 3: Strömm í takti
Settu taktmæli í gang á rólegum hraða og spilaðu einfalt strömm-mynstur á einum hljómi. Markmiðið er ekki að spila hratt heldur jafnt, svo hægri höndin fari að halda taktinum af sjálfu sér. Og um leið ertu að æfa þig að hlusta á taktinn á meðan þú ert að spila, það er mjög mikilvægt!
Mínúta 4: Eitt lag, einn kafli
Taktu lag sem þú ert að læra og spilaðu bara einn kafla, til dæmis viðlagið, aftur og aftur. Ekki allt lagið, því þá er hætt við að þú spilir alltaf byrjunina vel og restina illa. Bara alls ekki byrja alltaf á laginu frá byrjun, þá endaru með að hljóma eins og biluð plata sem virkar bara fyrsta hlutan og svo fer allt í rugl. Æfðu aðra hluta í laginu, einn í einu og prófaðu svo að blanda þeim saman.
Mínúta 5: Spilaðu eitthvað skemmtilegt
Síðasta mínútan er bara fyrir þig. Spilaðu lag sem þú kannt og þykir vænt um, og leyfðu þér að njóta. Þetta er mínútan sem fær þig til að vilja taka gítarinn upp aftur á morgun.
Og svo?
Það er alveg leyfilegt að halda áfram ef þú ert komin í stuð, og oft gerist það einmitt þannig: fimm mínútur verða að tuttugu áður en þú veist af. En ef fimm mínútur eru allt sem dagurinn býður upp á, þá eru þær meira en nóg. Settu gítarinn á stand frekar en ofan í tösku, svo hann sé alltaf innan seilingar, og sjáðu hvað gerist eftir nokkrar vikur.
Gleðilegt gítarspil!!
Langar þig að taka gítarinn fram?
Námskeið fyrir fullorðna byrjendur og þá sem eru að byrja aftur.