gitarskolinn.is

Hljóma öll lögin eins? Nýtt námskeið: Grunnnámskeið 2
Strömm, strömm, strömm… og svo aftur strömm

Niður. Niður. Niður. Niður.

Það er þriðjudagskvöld í stofunni, gítarinn er kominn í fangið og hægri höndin hamast eins og rúðuþurrka á Hellisheiði í febrúar: niður, niður, niður, alveg þar til lagið klárast. Svo byrjar næsta lag, og það hljómar grunsamlega líkt því síðasta.

Hljómarnir eru komnir, það er ekki málið. G, C, D og Em sitja þar sem þeir eiga að sitja, og vinstri höndin er orðin nokkuð örugg með sig. En einhvern veginn renna útilegulagið, ballaðan og rokklagið saman í einn grautarlegan hljómavegg sem minnir meira á þvottavél á vindingu en tónlist.

Hljóma öll lögin þín eins??

Ef svarið er já ertu í mjög góðum félagsskap. Þetta er eitt það algengasta sem ég heyri eftir fyrsta námskeiðið, og það er fullkomlega eðlilegt. Þegar fyrstu hljómarnir eru að lærast fer ÖLL athyglin í vinstri höndina. Hægri höndin fær eitt einasta verkefni, að slá niður, og hún sinnir því af svívirðilegri samviskusemi.

En það er einmitt í hægri hendinni sem tónlistin lifnar við. Sami hljómagangur getur hljómað eins og varðeldur á Þingvöllum, kraftballaða á Eurovision-sviðinu eða blússandi bílskúrsrokk, allt eftir því hvernig þú strömmar.

Hvort heldurðu að vanti fleiri hljóma… eða betra strömm?

Einmitt.

Þess vegna hef ég sett saman Grunnnámskeið 2, þar sem allt snýst um áslátt og takt. Við lærum ólík ásláttarmynstur og hvenær hvert þeirra passar, áherslur og dempun sem gefa spilinu kraft og grúv, að spila veikt og sterkt, og lög í 4/4, 3/4 og 6/8. Við lærum þetta ekki með því að stara á blað, heldur með því að spila lög og hljómaæfingar saman, því þannig náum við best tök á þessu.

Námskeiðið hentar þeim sem hafa lokið Grunnnámskeiði 1, en líka þeim sem kunna helstu hljómana („vinnukonugripin“, Em, Am, C, G ofl.) og hafa kannski strömmað sömu lögin á nákvæmlega sama hátt árum saman.

Hvenær: þriðjudagana 17. og 24. nóvember og 1. og 8. desember, kl. 18:30–20:30

Hvar: í risinu hjá Ferðafélagi Íslands, Mörkinni 6

Verð: 29.900 kr. (Verð fyrir félagsmenn FÍ: 25.900 kr.)

Nánari upplýsingar og skráning: Grunnnámskeið 2: Ásláttur

Gefðu hægri hendinni loksins eitthvað skemmtilegt að gera.

Gleðilegt strömm!!

The post Hljóma öll lögin eins? Nýtt námskeið: Grunnnámskeið 2 appeared first on gitarskolinn.is.

Gítarinn í geymslunni
Geymslan.

Innst í horninu. Bak við jólaskrautið, tjaldið sem enginn hefur nennt að brjóta saman síðan á Þjóðhátíð og kassann merktan „ÝMISLEGT“ með feitum túss.  Þar stendur hann.. gítarinn!

Keyptur í næntís. Spilaður af ástríðu í heilar þrjár vikur. Svo kom lífið. Vinnan. Börnin. Húsnæðislánið. Grillið sem þurfti að setja saman.

Þrjátíu ár. Strengirnir eru orðnir brúnir eins og gamlar símasnúrur. Rykið svo þykkt að það mætti aldursgreina það með kolefnisgreiningu. Ein köngulóin hefur komið sér upp þriggja herbergja íbúð í hljóðopinu. Með svölum.

Og þú stendur þarna með vasaljósið í símanum og hugsar:

„Æ. Þetta er löngu búið.“

Er þetta ekki bara orðið of seint??

Nei. En heilinn er snillingur í afsökunum. Hann framleiðir þær hraðar en Ölgerðin framleiðir Malt fyrir jólin.

„Ég er komin á þann aldur.“„Fingurnir á mér eru eins og bjúgu.“

„Allir sem kunna á gítar byrjuðu tólf ára í bílskúr í Keflavík.“

„Ég hef ekki TÍMA.“

Sama fólk og hefur tíma til að horfa á fjórar seríur af dönskum glæpaþáttum á einni helgi. Með textanum á.

Sannleikurinn er blákaldur og einfaldur.

Gítarinn veit ekkert hvenær þú fæddist. Hann spyr ekki um kennitölu. Hann er ekki með aldurstakmark eins og skemmtistaður á Austurvelli.

Hann vill bara að einhver taki hann upp.

Fullorðnir læra ekki verr. Bara öðruvísi.

Unglingurinn hefur tíma. Það er satt.

En þú hefur ýmislegt sem hann hefur ekki.

Þú veist hvaða tónlist þú elskar. Þú ert ekki að læra lag af því mamma skráði þig í tónlistarskólann. Þú ert að læra lagið sem var spilað í brúðkaupinu þínu.

Þú kannt að skipuleggja. Tíu mínútur á morgnana áður en húsið vaknar. Korter yfir kvöldfréttunum. Það dugar. Í alvöru.

Og þú skilur hlutina. Þegar þú veist AF HVERJU hljómur virkar, þá situr hann. Ekki bara í fingrunum, heldur í hausnum líka.

Ég hef kennt á gítar í yfir tuttugu ár. Fólki á öllum aldri.

Sumir af bestu nemendunum mínum byrjuðu eftir fimmtugt. Mættu með gítar sem leit út fyrir að hafa verið grafinn upp í fornleifauppgreftri á Þingvöllum.

Og spiluðu lög við varðeld nokkrum vikum seinna.

En gítarinn… er hann ekki ónýtur??

Sennilega ekki. Gítar sem hefur legið í dvala í þrjátíu ár er eins og björn í hýði. Svolítið úrillur. Stífur. Þarf smá ást og einn góðan kaffibolla.

Þetta þarf hann:

Nýja strengi. Gömlu strengirnir hafa lokið sinni þjónustu. Leyfðu þeim að fara með reisn.

Rykþurrku og smá dekur.  Köngulóin fær uppsagnarbréf. Með þriggja daga fyrirvara.

Stillingu.  Ókeypis stillir í símann og þá er gítarinn klár. (Mæli með appinu GuitarTuna).

Ef strengirnir standa skraufþurrir og langt upp frá hálsinum, eða ef sprunga hefur læðst inn einhvers staðar, þá borgar sig að kíkja með hann í hljóðfæraverslun. Oftast er það minna mál en þú heldur.

Og allt í einu stendur hann þarna. Glansandi. Stilltur. Tilbúinn. Eins og gamall vinur sem bankar upp á eftir þrjátíu ár og segir: „Jæja. Hvar vorum við?“

Áskorunin

Farðu í geymsluna. Í dag.

Sæktu hann. Já. Bak við jólaskrautið. Þú veist nákvæmlega hvar hann er.

Settu á hann nýja strengi. Stilltu hann. Og spilaðu einn hljóm. Bara einn. Em er fínn. Hann þarf bara tvo fingur.

Hann mun hljóma skelfilega. Fingurnir munu mótmæla eins og ungmennafélag á aðalfundi.

Alveg sama. Þrjátíu ár í geymslunni voru ekki tapaður tími. Þau voru bara langur forleikur.

Tónlistin hefur beðið nógu lengi. Ekki láta hana bíða í önnur þrjátíu.

Gleðilegt gítarspil!!

Viltu fá hjálp við fyrstu skrefin? Á gitarskolinn.is eru námskeið fyrir fullorðna byrjendur og þá sem eru að byrja aftur. Engin fyrri reynsla nauðsynleg.

The post Gítarinn í geymslunni appeared first on gitarskolinn.is.

Gítarinn sem þú keyptir en lærðir aldrei á
Kannski stendur hann inni í svefnherbergi, hangir uppi á vegg eða er í tösku einhvers staðar inni í skáp. Gítarinn sem þú keyptir af því þig hafði lengi langað til að læra að spila.

Þú byrjaðir kannski af krafti, fannst einhver kennslumyndbönd á YouTube, lærðir tvo eða þrjá hljóma og mögulega byrjunina á Smoke on the Water. Svo gerðist eitthvað.

Kannski varð of mikið að gera. Kannski vissirðu ekki alveg hvað þú áttir að læra næst. Eða kannski reyndist bara töluvert erfiðara að láta þessa blessuðu fingur gera það sem þú vildir en þú hafðir reiknað með.

Svo fór gítarinn til hliðar.

Ég hitti ótrúlega mikið af fólki sem á nákvæmlega þessa sögu.

„Ég byrjaði einu sinni að læra“

Þetta heyri ég mjög oft þegar fólk kemur á námskeið hjá mér.

„Ég á reyndar gítar.“

„Ég lærði aðeins þegar ég var yngri.“

„Ég kann nokkra hljóma en hef aldrei náð almennilega tökum á þeim.“

Og stundum hefur fólk átt gítarinn í mörg ár. Jafnvel áratugi.

Mér finnst ekkert skrýtið við það. Það er nefnilega töluvert auðveldara að kaupa gítar en að læra á hann.

Það er heldur ekkert sérstaklega erfitt að finna upplýsingar um hvernig eigi að spila. YouTube eitt og sér getur líklega kennt þér nánast allt sem hægt er að gera á gítar.

Vandamálið er frekar að vita hvað þú átt að læra, í hvaða röð og hvað þú átt að gera þegar eitthvað gengur ekki.

Þrír hljómar – hvað svo?

Þetta er oft staðurinn þar sem fólk festist á.

Þú ert búin/n að læra nokkur grip. Þú getur spilað G, C, D og Em ef þú færð nægan tíma til þess. En þegar þú reynir að spila lag þarftu allt í einu að skipta á milli þeirra á meðan hægri höndin á líka að halda einhverjum takti.

Þá verður þetta aðeins flóknara.

Svo finnurðu annað myndband sem kennir eitthvað allt annað. Og annað. Og annað.

Á endanum ertu kannski farin/n að safna kennslumyndböndum frekar en að læra á gítar.

Ég hef stundum líkt þessu við að allar bækurnar sem þarf til að læra læknisfræði séu væntanlega til á bókasafni. Það þýðir samt ekki að besta leiðin til að verða læknir sé að ganga þar inn, velja bók af handahófi og byrja að lesa.

Röðin skiptir máli.

Það sama á við um gítarinn.

Það er ekkert vandræðalegt við að byrja aftur

Stundum finnst fólki næstum eins og því hafi mistekist af því það keypti gítar fyrir tíu árum og lærði aldrei almennilega á hann.

Mér finnst það algjör óþarfi.

Ég hef kennt fólki sem er að halda á gítar í fyrsta skipti og líka fólki sem hefur átt gítar í áratugi. Fólki sem jafnvel lærði eitthvað sem unglingar og tekur upp þráðinn aftur áratugum síðar.

Og það skemmtilega er að hlutirnir eru oft fljótari að koma til baka en fólk býst við.

Gamli G-hljómurinn leynist kannski enn einhvers staðar í fingrunum. Rytminn sem þú lærðir fyrir tuttugu árum kemur aftur. Og ef ekkert kemur aftur?

Þá byrjarðu bara þar sem þú ert.

Það er ekkert flóknara en það.

„Ég vildi að ég hefði haldið áfram“

Þetta er önnur setning sem ég heyri reglulega.

Og ég skil hana mjög vel.

Ef þú keyptir gítar fyrir fimmtán árum er auðvelt að hugsa: Ef ég hefði bara haldið áfram þá, hvað gæti ég verið farin/n að geta í dag?

En það er eiginlega vitlaus spurning.

Þú getur ekkert gert við síðustu fimmtán ár. Þú getur hins vegar ráðið því hvort gítarinn stendur enn á sama stað eftir eitt ár.

Það þarf heldur ekkert stórátak.

Taktu hann fram. Stilltu hann. Rifjaðu upp einn hljóm. Finndu lag sem þig langar raunverulega að geta spilað. Gefðu þessu korter.

Og gerðu það svo aftur.

Ef þig langar að byrja aftur

Það eru margar leiðir til þess og það þarf ekki endilega að passa inn í ákveðna dagsetningu eða námskeið.

Hjá Gítarskólanum höldum við reglulega grunnnámskeið fyrir fullorðna þar sem farið er skipulega frá byrjun í hljóma, rytma og lög. Fyrir þau sem vilja frekar læra heima og á sínum hraða eru líka netnámskeið sem eru alltaf opin.

Aðalatriðið er samt ekki hvaða leið þú velur.

Það er að gítarinn fari aftur úr töskunni.

Kannski er kominn tími til.

The post Gítarinn sem þú keyptir en lærðir aldrei á appeared first on gitarskolinn.is.

Frábær stemning í Samspilinu í Heiðmörk
Það var heldur betur líf og fjör í Heiðmörk þegar við hittumst í Samspili Gítarskólans. Mætingin fór fram úr væntingum og það var sérstaklega gaman að sjá hversu margir mættu með gítarinn, tilbúnir að spila saman og eiga góða stund.

Samspilið var haldið í samstarfi Tónsmiðju Gítarskólans, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur og Heiðmörkin reyndist alveg frábær umgjörð utan um daginn.

Gítarinn er líka félagslegt hljóðfæri

Það er eitt að sitja heima og æfa sig, en allt annað að setjast niður með öðru fólki og spila saman. Þá fer maður að hlusta öðruvísi, halda takti með hópnum og finna hvernig gítarinn verður hluti af einhverju stærra.

Og það þarf alls ekki að vera atvinnumaður til að taka þátt í slíku samspili. Þvert á móti. Hugmyndin er að fólk á mismunandi stað í gítarnáminu geti komið saman, spilað lög sem það þekkir og haft gaman af.

Það var einmitt það sem gerðist í Heiðmörk. Góð mæting, mikið spilað, mikið hlegið og virkilega góð stemning.

Sjáðu stemninguna í myndbandinu

https://gitarskolinn.is/wp-content/uploads/2026/09/gitarskolinn_samspil_heidmork_16x9.mp4

Myndbandið gefur líklega betri mynd af deginum en mörg orð geta gert. (Ljósm. og video: Þórir Benedikt / bjornsson.is)

Meira en bara gítarnám

Samspilið er hluti af því sem mig langar að byggja áfram upp í kringum Tónsmiðju Gítarskólans. Tónsmiðjan snýst auðvitað um að læra ný lög, bæta gítarleikinn og fá reglulega nýtt efni til að vinna með, en líka um að skapa tækifæri fyrir fólk til að nota það sem það er að læra.

Að spila með öðrum er stór hluti af því.

Það þarf nefnilega ekki alltaf að vera markmiðið að æfa meira eða verða betri. Stundum er markmiðið einfaldlega að taka gítarinn með sér, hitta gott fólk og spila nokkur lög saman.

Takk kærlega fyrir frábæra mætingu og stemningu í Heiðmörk og takk Ferðafélag Íslands og Skógræktarfélag Reykjavíkur fyrir samstarfið.

Við gerum þetta klárlega aftur!

Langar þig að vera með næst?

Samspilið er hluti af því sem við gerum í kringum Tónsmiðju Gítarskólans. Þar færðu reglulega nýtt efni til að spila, lög og æfingar, en líka tækifæri til að hitta aðra gítarleikara og spila saman.

Kynntu þér Tónsmiðjuna:  gitarskolinn.is/tonsmidjan

The post Frábær stemning í Samspilinu í Heiðmörk appeared first on gitarskolinn.is.

Spilum og syngjum saman í Heiðmörk 1. júlí
Miðvikudaginn 1. júlí kl. 18:00 verður haldið opið samspilskvöld í Heiðmörk þar sem öllum sem hafa gaman af gítarleik og söng er boðið að taka þátt.

Markmiðið er einfalt – að hittast, njóta útiverunnar og eiga notalega kvöldstund þar sem við spilum og syngjum saman. Spiluð verða 10–15 auðveld lög eftir stemningu og lögin verða valin þannig að sem flestir geti tekið þátt. Það skiptir engu máli hvort þú sért byrjandi eða lengra kominn. Þeir sem vilja frekar syngja með eða einfaldlega njóta stemningarinnar eru einnig hjartanlega velkomnir.

Samspilið fer fram við Elliðavatnsbæ. Ef veður og aðstæður leyfa finnum við okkur góðan stað í skóginum, en ef veðrið verður ekki með okkur í liði færum við okkur nær húsinu eða innandyra.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Gítarskólans, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Hugmyndin er að sameina tónlist, útivist og góða samveru í fallegu umhverfi Heiðmerkur.

Þátttaka er ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram. Nokkrum dögum fyrir viðburðinn fá allir þátttakendur sent PDF sönghefti með lögunum, sem hægt er að prenta út eða hafa í síma eða iPad. Gott er að taka með sér fellistól, koll eða teppi til að sitja á.

Skráning

https://gitarskolinn.is/spilum-saman-i-heidmork-1-juli/

Við hlökkum til að sjá sem flesta í Heiðmörk og vonum að þetta verði fyrsta samspilskvöldið af mörgum.

The post Spilum og syngjum saman í Heiðmörk 1. júlí appeared first on gitarskolinn.is.

Aldrei of seint að byrja – Frábær stemning á uppseldu námskeiði í Hafnarfirði!
Grunnnámskeiðinu í gítarleik, sem haldið var í Hafnarfirði 5. til 26. maí, er nú lokið og tókst það vægast sagt vel. Námskeiðið seldist upp og það var ótrúlega gaman að sjá þennan fjölbreytta hóp stilla saman strengi. Stemningin var hreinlega frábær frá fyrsta degi til þess síðasta!

Það sem gladdi mig sérstaklega við þennan hóp var að meðalaldurinn var í kringum 50 ár. Margir mættu til að dusta rykið af gítarnum eftir langt hlé, aðrir voru að stíga sín alveg fyrstu skref og sumir voru loksins að láta gamlan draum rætast eftir að hafa beðið eftir „rétta tímanum“. Þetta sýndi okkur svart á hvítu að það er aldrei of seint að byrja.

Markmiðið með námskeiðunum okkar er einmitt að gera gítarleik aðgengilegan og skemmtilegan – án pressu og án krafna um tónlistargrunn. Við tókum þetta á rólegu nótunum, fórum yfir helstu hljómana, fundum taktinn og spiluðum einföld lög saman.  mikil áhersla var lögð á uppbyggingu tónlistar, mismunandi takttegundir og hvernig tónlist virkar í raun.  Aðalatriðið er alltaf að fólk fái sjálfstraust til að taka upp gítarinn heima í stofu og njóta þess að spila, og þessi hópur fór klárlega með það nesti heim.

Vegna mikillar eftirspurnar stefnum við á fleiri námskeið í Hafnarfirði, bæði í sumar og haust. Fylgstu með hér á gitarskolinn.is (eða skráðu þig á póstlistann okkar) til að missa ekki af næstu skráningu!

The post Aldrei of seint að byrja – Frábær stemning á uppseldu námskeiði í Hafnarfirði! appeared first on gitarskolinn.is.

Uppselt á grunnnámskeið í Hafnarfirði
Grunnnámskeiðið í gítarleik, sem hófst 5. maí s.l. í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn (gamla Lækjarskólanum) í Hafnarfirði, seldist upp og hefur farið vægast sagt vel af stað. Námskeiðið stendur til 26. maí og það hefur verið ótrúlega gaman að sjá þennan fjölbreytta hóp stilla saman strengi. Stemningin hefur verið frábær frá fyrsta degi!

Það sem hefur glatt mig sérstaklega er að meðalaldurinn á þessu námskeiði er í kringum 50 ár. Margir eru að dusta rykið af gítarnum eftir langt hlé, aðrir eru að stíga sín alveg fyrstu skref og sumir eru loksins að láta gamlan draum rætast eftir að hafa beðið eftir „rétta tímanum“. Þetta sýnir okkur svart á hvítu að það er aldrei of seint að byrja.

Markmiðið með námskeiðunum er einmitt að gera gítarleik aðgengilegan og skemmtilegan – án pressu og án krafna um tónlistargrunn. Við tökum þetta á rólegu nótunum, förum yfir helstu hljómana, finnum taktinn og spilum einföld lög saman. Aðalatriðið er að fólk fái sjálfstraust til að taka upp gítarinn heima í stofu og njóta þess að spila.

Vegna mikillar eftirspurnar stefnum við á fleiri námskeið í Hafnarfirði, bæði í sumar og haust. Fylgstu með hér á gitarskolinn.is (eða skráðu þig á póstlistann okkar hér neðar) til að missa ekki af næstu skráningu!

The post Uppselt á grunnnámskeið í Hafnarfirði appeared first on gitarskolinn.is.

Nokia stefið / hringitónninn
Þeir sem muna eftir Nokia símunum muna eflaust eftir einkennandi hringitón / stef sem var í þessum símum.  Margir vita þó ekki að það er úr tónverki að nafni „Gran Vals“ eftir Spænskan gítarleikara, Francisco Tárrega.  Hér kíkjum við á stefið og lærum það.

The post Nokia stefið / hringitónninn appeared first on gitarskolinn.is.

Gleðilegt nýtt gítarár!
Kæru vinir og velunnarar,

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir samfylgdina á því gamla. Ég vona að þið hafið haft það gott um hátíðarnar, borðað góðan mat og hlaðið batteríin.

Það er alltaf ákveðin tilhlökkun sem fylgir janúar. Nýtt ár er svolítið eins og að setja nýja strengi á gítarinn; hljómurinn verður tærari, bjartari og manni klæjar í fingurna að byrja að spila.

Framundan er spennandi ár hjá Gítarskólanum. Við ætlum að halda áfram að hafa gaman, læra nýja og skemmtilega tónlist og, síðast en ekki síst, spila saman.

Mín ósk fyrir ykkur árið 2026 er að tónlistin fái að fylgja ykkur. Hvort sem það er að hlusta meira, mæta á tónleika eða grípa oftar í hljóðfærið heima.

Hlökkum til að sjá ykkur í tíma!

Bestu kveðjur, Bent Marinósson gitarskolinn.is

The post Gleðilegt nýtt gítarár! appeared first on gitarskolinn.is.

Gítarinn sem félagi og vinur – ekki verkefni
Margir nálgast gítarinn eins og verkefni. Eitthvað verkefni sem þarf að „klára“. Æfa rétt, gera nóg og ná ákveðnu stigi. Ef sú pressa er til staðar þá er hætt við þvi að einhversstaðar á leiðinni glatar gítarinn því sem gerði hann svo spennandi til að byrja með.

Gítarinn var nefnilega aldrei hugsaður sem verkefni. Hann var hugsaður sem félagi.

Þegar gítarinn verður byrði

Ég hef séð þetta oft. Fólk byrjar af miklum áhuga en svo fer pressan að læðast aftan að því.

„Ég ætti að æfa meira.“ „Ég er ekki kominn nógu langt.“ „Ég kann þetta ekki almennilega.“

Skyndilega er gítarinn orðinn áminning. Ekki um gleði – heldur áminning um það sem vantar. Og þá gerist eitthvað skrítið: Maður fer að forðast hann.

Ekki af leti, heldur af því að enginn vill setjast niður með hlut sem lætur manni líða eins og maður sé að standa sig illa.

Gítarinn á að vera með þér – ekki yfir þér

Gítarinn þarf ekki að vera dómari og hann þarf ekki að mæla árangur. Hann getur verið:

Þar þegar þú vilt slaka á.

Þar þegar þú vilt gleyma stund og stað.

Þar þegar þú vilt bara heyra nokkra tóna.

Einn dag spilar þú í fimm mínútur. Annan dag í hálftíma. Stundum bara einn hljóm.

Allt telur.

Fullorðnir læra öðruvísi – og það er kostur

Sem fullorðin manneskja ertu ekki endilega að reyna að verða „gítarleikari“. Þú ert að reyna að hafa gítarinn í lífinu þínu.

Þú veist hvað þú fílar. Þú veist hvaða lög snerta þig. Og þú þarft ekki samþykki frá neinum. Það felst mikið frelsi í því.

Þegar gítarinn fær að vera félagi en ekki verkefni, þá koma framfarirnar oft sjálfkrafa. Ekki vegna aga, heldur vegna þess að þú leitar aftur til hans.

Samband sem má vera afslappað

Sum sambönd eru ekki flókin. Þau þurfa ekki reglur, mælikvarða eða markmið. Gítarinn má alveg vera þannig!

Hann má bíða. Hann má vera tekinn upp hvenær sem er sólarhringsins og án áætlunar. Gítarinn er ekki strætó sem gengur frá Hlemmi 15 mínútur yfir heila tímann…  Gítarinn er til staðar fyrir þig og má vera aðeins fyrir þig. Og ef þú spilar ekkert í viku? Þá er þaðbara allt í lagi.

Hann er ekki að fara neitt.

Kannski er þetta lykillinn

Ef þú hefur átt gítar lengi en spilar lítið, þá er vandamálið líklega ekki skortur á aga eða hæfileikum. Kannski var gítarinn bara orðinn verkefni sem þér fannst þér þurfa að tækla og náðir aldrei að „klára“.  Stóri lykilinn er etv sá að hljóðfæri er eitthvað sem maður nær aldrei að „klára“ eða komast á „endastöð“ – þetta er endalaust ferðalag og um að gera að finna sem mesta gleðina í því sem maður er að gera á hljóðfærinu hverju sinni og njóta ferðalagsins stund frá stundu.

Þú þarft einfaldlega að leyfa honum að verða félagi aftur. Engin pressa. Engin skylduæfing. Bara spila tóna, þegar þeir henta – og njóta og hafa gaman!

Og það er meira en nóg.  Njóttu vel og mundu að hafa gaman!

The post Gítarinn sem félagi og vinur – ekki verkefni appeared first on gitarskolinn.is.