Tónsmiðjan er til fyrir þig sem vilt spila reglulega með æfingum, lögum og stuðningi frá öðrum gítarleikurum.
Vantar þig aðhald til að taka upp gítarinn heima? Í Tónsmiðjunni færðu nýtt efni í hverri viku, skýrar æfingar og frábæran félagsskap sem heldur þér við efnið. Engin pressa, bara tónlist og fjör!
Tónsmiðjan er vettvangur fyrir þig sem langar gera gítarinn að föstum punkti í tilverunni og ná góðum tökum á hljóðfærinu.
Hér hittumst við til að spila lög og deila áhuganum, í stað þess að æfa ein í hljóði. Við vitum að það getur verið erfitt að halda dampi einn á báti. Þess vegna leggjum við áherslu á samfélag og aðhald.
Þú færð skýr verkefni sem gefa þér ástæðu til að grípa í hljóðfærið. Við hjálpum þér að ná betra valdi á gítarnum í gegnum leikgleði og tónlist – ekki stífar æfingar.
Hvað er innifalið í Tónsmiðjunni ?
- Þú lærir tvö ný lög í hverjum mánuði
Við förum yfir ný lög reglulega með myndböndum, nótum og undirspili. Með hverju lagi fylgir myndband með ábendingum um hvernig væri gott að spila lagið.
- Æfingar og tilgangur
Vikulegar æfingar sem gefa þér stefnu og halda þér við efnið.
- Samfélag og spjall
Það eru fleiri í sömu sporum og þú. Í gegnum „spurt og svarað“ og spjall færðu stuðning frá öðrum sem eru á sömu vegferð.
- Reglulegt samspil
Þátttakendum í Tónsmiðjunni mun bjóðast að hittast á 4-6 vikna fresti ásamt kennar þar sem við komum saman og spila lög sem við höfum æft og etv fleiri til.
- Aukin færni á gítarinn og meira öryggi
Með því að spila reglulega og markvisst eykur þú færni þína og öryggi á hljóðfærinu.
„Ég kann hljómana... en strömmið er stirt“
Kanntu gripin en vantar taktinn? Við kennum þér að tengja hendurnar saman svo lögin hljómi eins og lög. Engin flókin trix, bara markvissar, skemmtilegar æfingar og þjálfun.
Dæmi um „æfingu vikunnar“
Æfing vikunnar er afmörkuð æfing sem hjálpar þér að halda þér reglulega við í spilamennskunni. Hún er hugsuð sem einföld og markviss leið til að styrkja ákveðinn þátt – til dæmis hljómaskipti, takt, hlustun eða flæði – án þess að það verði yfirþyrmandi. Þú þarft ekki að ná þessu fullkomlega; markmiðið er að vinna rólega með æfinguna nokkrar mínútur í senn og leyfa henni að setjast í fingur og líkama. Regluleg, stutt vinna skilar meiri árangri en ein löng æfing af og til.
Æfing vikunnar er eitthvað „sígrænt“, þannig að þú getur gripið í æfinguna aftur og aftur og upplifað nýja hluti og fundið framfarir hjá þér jafnt og þétt. Eins og í þessari æfingu eru nefndar tvær leiðir til að spila þessa hljóma og báðar eru í góðu lagi. Eftir sem þú nærð betri tökum á gítarnum og æfingunni verður spilamennskan þín „dýpri“ og „betri“ og í senn músíkalskari.
Algengar spurningar og svör við þeim
Hér finnur þú svör við algengustu spurningunum um Tónsmiðjuna. Ef eitthvað er óljóst, hafðu endilega samband.
Hvað er Tónsmiðjan og fyrir hvern er hún?
Tónsmiðjan er lifandi kennsluumhverfi fyrir gítarleik þar sem nýtt efni bætist reglulega við. Þú færð stuttar kennslueiningar, æfingar og tónlist sem hjálpar þér að halda gítarleiknum í gangi — án pressu.
Hún er sérstaklega hugsuð fyrir:
fullorðna nemendur, sem eru með einhvern grunn
fólk sem lærði áður en tók langa pásu
þá sem kunna grunninn en vantar rútínu og framvindu
Það er gott ef þú þekkir nokkra grunnhljóma og getur haldið á gítarnum. Margir nota Tónsmiðjuna samhliða grunnnámskeiði, en það er ekki skilyrði.
Tónsmiðjan er lifandi kennsluumhverfi fyrir gítarleik þar sem nýtt efni bætist reglulega við. Þú færð stuttar kennslueiningar, æfingar og tónlist sem hjálpar þér að halda gítarleiknum í gangi — án pressu.
Hentar Tónsmiðjan þér?
JÁ – ef þú kannt grunnhljómana: Tónsmiðjan er frábær kostur fyrir þig ef þú þekkir helstu gripin (C, G, D, Em o.s.frv.) og getur skipt á milli þeirra. Hún er sérstaklega hugsuð fyrir fullorðna sem vantar rútínu, vilja halda sér við efnið eða eru að byrja aftur eftir langa pásu.
Ef þú ert algjör byrjandi: Ef þú hefur aldrei haldið á gítar eða ert rétt að stíga þín fyrstu skref, þá mæli ég sterklega með því að þú takir fyrst netnámskeiðið „Gítar grunnur 1“ eða skráir þig á staðnámskeið hjá mér þegar það er í boði. Þegar þú ert kominn með grunninn á hreint, þá bíður Tónsmiðjan eftir þér!
Hvað fæ ég og hvernig virkar kennslan ?
Þú færð aðgang að:
öllum kennslueiningum sem eru komnar inn
nýju efni sem bætist reglulega við
Æfingu vikunnar
lögum og play-along nálgun
kennsluumhverfi sem er byggt upp í litlum, aðgengilegum skrefum
Kennslan er upptöku-miðuð, þannig að þú lærir þegar þér hentar. Stundum geta verið valkvæð samskipti eða viðburðir, en það er aldrei skylda.
Bent Marinósson kennir í Tónsmiðjunni, gítarkennari og tónlistarmaður með áralanga reynslu af kennslu fyrir fullorðna nemendur — sérstaklega þeim sem vilja læra á sínum hraða.
Hversu mikinn tíma þarf ég og hentar þetta mér ?
Flestir æfa 10–30 mínútur í senn, 2–4 sinnum í viku. Þú ræður hraðanum sjálfur — þetta á að passa inn í raunverulegt líf.
Ef þú hefur lítið sjálfstraust í spilamennsku, þá hentar Tónsmiðjan sérstaklega vel. Hún er byggð upp til að draga úr pressu, ekki auka hana. Lítil skref, skýr verkefni og enginn samanburður.
Þú getur líka verið í Tónsmiðjunni samhliða öðrum námskeiðum. Margir nota hana sem stoð til að halda rútínu og æfingaflæði.
Hvernig virkar aðgangur og greiðsla ?
Skráning fer fram á hlekknum hér fyrir neðan. Skráningin er í gegnum Teachable kennslukerfið og aðgangur virkjast strax þegar greiðsla gengur í gegn.
Þú færð mánaðarlegan aðgang að Tónsmiðjunni. Greitt er mánaðarlega og engin binding — þú getur hætt hvenær sem er.
Verð: Mánaðaráskrift er 5.900 kr. á mánuði. Í upphafi bjóðum við takmarkaðan fjölda stofnfélaga aðgang á 4.900 kr. á mánuði. Stofnfélagaverðið helst óbreytt á meðan aðgangur er virkur.
Verðið er skýrt sýnt við skráningu og engar faldar skuldbindingar fylgja.
Stofnfélagar og sérkjör (Aðeins 50 pláss í boði)
Við opnun Tónsmiðjunnar bjóðum við upp á takmörkuð pláss fyrir 50 stofnfélaga. Þetta er gert til að byggja upp öflugan kjarnahóp og verðlauna þá sem stökkva fyrstir um borð.
Sem stofnfélagi færð þú tvennt umfram aðra:
Stofnfélagaverð sem helst óbreytt: Þú færð aðgang á lægra upphafsverði sem mun haldast á meðan áskriftin þín helst virk, jafnvel þótt almennt verð hækki síðar.
Hafðu áhrif: Þú ert með frá byrjun og færð tækifæri til að hafa áhrif á hvaða lög og æfingar verða tekin fyrir í framhaldinu.
Athugið: Þegar þessi 50 pláss fyllast verður lokað fyrir þessi kjör fyrir nýja aðila.