Gítarinn frá grunni – 5. – 26. maí

29.900 kr.

Flokkur:

HVAR OG HVENÆR ?

Námskeiðið verður haldið í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn í Hafnarfirði (Gamli Lækjarskólinn).
5. – 26. maí, kennt verður alla þriðjudaga á tímabilinu, milli kl. 18:30 – 20:30.

Lágsmarksþátttaka eru 5 manns, hámark eru 14 manns.

Við hittumst 1x í viku í 2 klst í senn þar sem kennari fer yfir kennsluefni vikunnar skref fyrir skref.

Almennt verð er kr. 29.900 .

Ath. flest stéttarfélög endurgreiða stóran eða allan hluta námskeiðsgjaldsins. Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi.

Vinsamlegast athugið einnig að námskeiðið er byggt þannig upp að það er ætlað þátttaekndum 12 ára og eldri.  Yngri nemendur þurfa aðra nálgun en boðið er upp á á þessu námskeiði.

Availability: Á lager

Hvað lærir þú?

✅ Hljómar: Við lærum yfir 30 hljóma (opin grip/vinnukonugrip) sem duga til að spila mjög mikið magn laga.
✅ Tækni & Líkamsstaða: Rétt handstaða og líkamsbeiting er lykillinn að því að spila áreynslulaust og forðast meiðsli.
✅ Ásláttur & Rytmi: Við lærum mismunandi takttegundir (popp, rokk, blús o.fl.) og hvernig á að nota gítarnögl eða fingur.
✅ Hlustun & Skilningur: Þú færð nýja sýn á tónlist og lærir að heyra uppbyggingu laga („formið“).
✅ Capo: Við lærum að nota capo til að breyta tóntegundum á auðveldan hátt.

Hvernig fer kennslan fram?

Við hittumst einu sinni í viku í 2 klst. í senn. Tímarnir skiptast í kennslu og verklegar æfingar.

  • Kennslan: Kennari fer skref fyrir skref yfir nýtt efni.
  • Æfingar: Við spilum saman sem hópur. Það er ótrúlega gefandi og hjálpar þér að halda takti. Kennari gengur á milli og leiðbeinir hverjum og einum (persónuleg endurgjöf).
  • Heimaæfingar: Eftir hvern tíma færðu aðgang að lokuðu vefsvæði með kennsluefni, æfingum og hljóðdæmum til að æfa þig heima.

Dagsetningar: Kennsla fer fram á þriðjudögum  í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn í Hafnarfirði (Gamli Lækjarskólinn).

  • 5. maí kl. 18:30 – 20:30
  • 12. maí kl. 18:30 – 20:30
  • 19. maí kl. 18:30 – 20:30
  • 26. maí kl. 18:30 – 20:30

Af hverju að velja þetta námskeið?

  • Reyndur kennari: Bent Marinósson hefur yfir 20 ára reynslu og veit nákvæmlega hvar byrjendur rekast á vegg – og hvernig á að komast yfir hann.
  • Gott aðgengi: Þú ert ekki ein/n á báti milli tíma. Vefsvæðið okkar tryggir að þú getir alltaf rifjað upp efnið.
  • Engin pressa: Við erum öll hér til að læra. Það er pláss fyrir feilnótur og hlátur!

Hvað segja fyrri þátttakendur?

„Mér fannst þetta námskeið svo gefandi… Svo gaman að geta spilað saman sem hópur. Ég sé ekki hvernig þetta námskeið gæti orðið betra, það hentaði mér fullkomlega.”

„Hentaði fullkomlega fyrir mitt getu(leysis) stig í gítarleik. Engir fordómar fyrir fölskum tónum heldur allir á svipuðum forsendum. Þolinmæði og áhugi kennara var aðdáunarverður.“

„Hef spilað á gítarinn nær alla daga síðan ég fór í fyrsta tímann og hef mikla ánægju af.“

Praktísk atriði

  • Verð: 29.900 kr.
  • Styrkir: Flest stéttarfélög endurgreiða stóran hluta af námskeiðsgjaldinu. Kvittun sendist sjálfkrafa í tölvupósti.
  • Fjöldi: Lágmark 5 manns, hámark 14 manns. (Tryggðu þér sæti tímanlega).

Ekki láta gítarinn safna ryki lengur. Skráðu þig í dag og komum sumrinu af stað með tónlist!