6 vikna Zoom gítarnámskeið með kennara 6. jan – 10. feb

29.900 kr.

Flokkur:

HVAÐ LÆRIR ÞÚ Á NÁMSKEIÐINU ?
Á þessu námskeiði förum við yfir alla helstu grunnhljómana á gítar, svokölluð „vinnukonugrip“, og lærum að nota hljómana í tónlistarlegu samhengi. Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að því sem þú vilt taka þér fyrir hendur í gítarleik. Við gerum allskonar æfingar, spilum lög og hljóma og jafnvel búum til okkar eigin lög.

ÞÚ LÆRIR:

  • Þú lærir alla helstu grunnhljómana á gítar, svokölluð „vinnukonugrip“, á námskeiðinu förum við yfir allavegana 30 „grip“/hljóma.
  • Þú lærir góða handstöðu.
  • Þú lærir góða tækni með hægri- og vinstri hendi.
  • Þú lærir að beita þér rétt, góð líkamsstaða er lykilatriði bæði til að hljóma betur og einnig að koma í veg fyrir óþarfa líkamlegt álag og jafnvel meiðsli.
  • Þú lærir að spila með fingrum en einnig að nota gítarnögl.
  • Þú lærir mismunandi takttegundir og uppbygingu laga, þ.e.a.s. form þeirra og það mun breyta því hvernig þú hlustar á tónlist með auknum og betri skilning.
  • Þú lærir um mismunandi tónlistarstíla og færð innsýn inn í þá, t.d. popp, rokk, blús, latin ofl.

Lengd námskeiðs: 6 vikur
Hvenær: Á hverjum mánudegi, kl. 18:30 – 20:00
Tímabil: 6. janúar – 10. febrúar
Tegund námskeiðs: Zoom námskeið með kennara

HVAÐ LÆRIR ÞÚ Á NÁMSKEIÐINU ?
Á þessu námskeiði förum við yfir alla helstu grunnhljómana á gítar, svokölluð „vinnukonugrip“ auk annara hljóma, alls um 30 stk.  Við lærum að nota hljómana í tónlistarlegu samhengi. Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að því sem þú vilt taka þér fyrir hendur í gítarleik. Við gerum allskonar æfingar, spilum lög og hljóma og jafnvel búum til okkar eigin lög.

ÞÚ LÆRIR:

  • Þú lærir alla helstu grunnhljómana á gítar, svokölluð „vinnukonugrip“, á námskeiðinu förum við yfir allavegana 30 „grip“/hljóma.
  • Þú lærir góða handstöðu.
  • Þú lærir góða tækni með hægri- og vinstri hendi.
  • Þú lærir að beita þér rétt, góð líkamsstaða er lykilatriði bæði til að hljóma betur og einnig að koma í veg fyrir óþarfa líkamlegt álag og jafnvel meiðsli.
  • Þú lærir að spila með fingrum en einnig að nota gítarnögl.
  • Þú lærir mismunandi takttegundir og uppbygingu laga, þ.e.a.s. form þeirra og það mun breyta því hvernig þú hlustar á tónlist með auknum og betri skilning.
  • Þú lærir um mismunandi tónlistarstíla og færð innsýn inn í þá, t.d. popp, rokk, blús, latin ofl.

VIKULEG KENNSLA
Við hittumst 1x í viku í 1 1/2 klst í senn þar sem kennari fer yfir kennsluefni vikunnar skref fyrir skref.

VERKLEGAR ÆFINGAR
Í hverjum tíma eru æfingar sem við gerum til að styrkja það sem við höfum lært og byggja upp traustan grunn.

AÐGANGUR AÐ KENNSLUEFNI OG AUKAEFNI
Eftir hvern tíma færðu aðgang að kennsluefni með æfingum sem þú getur farið yfir og æft þig á milli tíma.  Ef þú kemst ekki í tímann þá færðu aðgang að upptöku af fræðsluhluta tímans þannig að þú missir ekkert úr.
Spurt & svarað: Í kennslutímum er nægt svigrúm til að spyrja spurninga og fá svör við þeim spurningum sem þú kannt að hafa.

AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ SKRÁ MIG ?
Kennari á námskeiðinu er Bent Marinósson, hann hefur yfir 20 ára reynslu í gítarkennslu og yfir 10 ára reynslu í kennslu í gegnum netið. Honum er það mikið í mun að þú náir árangri.
Gagnvirk kennsla: Kennslan er í rauntíma og kennari er til að staðar allan tímann. Þar sem kennslan er gagnvirk þá gefur það kost á endurgjöf frá kennara (feedback) og t.d. hægt að leiðrétta einhver tækniatriði áður en etv slæmir vanar ná að setjast að hjá þér.
Yfirgripsmikið námskeið: Á námskeiðinu er farið yfir marga hljóma, alls um 17 talsins. Þetta eru allir þeir helstu í „opinni stöðu“, þeas „vinnukonugripin“ og við lærum að nota capo einnig. Við förum mikið yfir áslátt og takttegundir, hvernig við getum nýtt okkur hljómana til að búa til fallegan, hljómfagran og taktvísan gítarleik.
Gott aðgengi að kennsluefni: Þú getur nálgast aukaefni og æfingar hvenær sem er á námskeiðinu á milli gítartíma og þannig æft þig þegar þér hentar.

MIKILVÆGT TÆKIFÆRI
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri og fá handleiðslu gítarkennara á þessi mikilvæga tímabili á ferðalagi þínu sem gítarleikari. Það er miklu auðveldara að tileinka sér góða vana strax heldur en að aflæra slæma og læra nýja í staðinn. Gerum þetta „rétt“ 🙂

Ýttu á „Setja í körfu“ kláraðu greiðslu og þú ert skráð/ur. Við hlökkum til að fá þig með í hópinn! Með því að nota afsláttarkóðann „haust24“ tryggiru þér 15% afslátt 🙂

Lágmarksþátttaka: 6 manns.
Ath. mörg stéttarfélög niðurgreiða námskeið, athugaðu hjá þínu stéttarfélagi.