Spilum saman Í HEIÐMÖRK

Elliðavatnsbær, miðvikudagur 1. júlí kl. 18:00

Samspil – Söngur – Góð stemning

Spilum saman Í HEIÐMÖRK

Elliðavatnsbær, miðvikudagur 1. júlí kl. 18:00

Samspil – Söngur – Góð stemning

Þér er boðið á samspilskvöld í Heiðmörk miðvikudaginn 1. júlí kl. 18:00. Viðburðurinn ókeypis og er hluti af Tónsmiðjunni, nýju gítarsamfélagi Gítarskólans.

Markmiðið er einfaldlega að hittast, spila saman og eiga skemmtilega kvöldstund. Við spilum 10–15 auðveld lög eftir stemningu og allir eru velkomnir, hvort sem þeir vilja spila, syngja með eða bara njóta samverunnar. Þetta er ekki tónleikar eða próf – bara afslappað kvöld þar sem gaman er að vera saman og njóta tónlistarinnar.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Gítarskólans, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Við hittumst við Elliðavatnsbæ og spilum saman í nágrenni hans. Ef veður og aðstæður leyfa finnum við okkur góðan stað í skóginum, en annars höldum við okkur við húsið eða færum okkur inn ef þurfa þykir.

Nokkrum dögum fyrir hittinginn mun ég senda út PDF söngbók með lögunum. Þú getur prentað hana út eða haft hana í síma eða iPad.

Gott er að taka með sér eitthvað til að sitja á, til dæmis fellistól, koll eða teppi.

Vinsamlegast skráðu þig fyrirfram svo ég geti áætlað fjölda og sent þér söngbókina.

Skráning hér: https://forms.gle/3kd4ErCwwNCxRbkF6

Hlakka til að sjá ykkur!

Bestu kveðjur,
Bent Marinósson
Gítarskólinn

Bent Marinósson
Gítarkennari, tónlistarmaður og stofnandi gitarskolinn.is

Með yfir 20 ára reynslu af gítarkennslu hef ég þróað kennsluaðferðir sem virka sérstaklega vel fyrir fullorðna. Markmið mitt er að gera gítarnám aðgengilegt og skemmtilegt, hvort sem er í einkatímum á netinu eða á staðnámskeiðum.