Framhaldsnámskeið í gítarleik hjá FÍ // 4 vikna námskeið // 11. mars
29.900 kr.
Ath. námskeiðið er fullbókað. Hægt er að senda tölvupóst á gitarskolinn (hjá) gitarskolinn.is og skrá sig á biðlista og/eða skráð sig á lista til að fá upplýsingar um næsta námskeið sem haldið verður.
Framhaldsnámskeið í gítarleik er 4ja vikna námskeið sem er rökrétt framhald af námskeiðinu „Gítarinn frá grunni“.
Næsta námskeið verður haldið hjá Ferðafélagi Íslands, Mörkinni 6, 108 Reykjavík.
Þriðjudag 11. mars, kl. 18:30 – 20:30
Þriðjudag 18. mars, kl. 18:30 – 20:30
Þriðjudag 25. mars, kl. 18:30 – 20:30
Þriðjudag 1. apríl, kl. 18:30 – 20:30
Við hittumst 1x í viku í 2 klst í senn þar sem kennari fer yfir kennsluefni vikunnar skref fyrir skref.
Almennt verð er kr. 29.900 en kr. 25.900 fyrir félaga í Ferðafélagi Íslands.
Ath! til að tryggja þér FÍ meðlimaafsláttinn notar þú afsláttarkóðann „fifelagi“ í netversluninni (án gæsalappa).
Ath. flest stéttarfélög endurgreiða stóran eða allan hluta námskeiðsgjaldsins. Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi.
Ekki til á lager
Framhaldsnámskeið í gítarleik er 4ja vikna námskeið sem er rökrétt framhald af námskeiðinu „Gítarinn frá grunni“.
Næsta námskeið verður haldið hjá Ferðafélagi Íslands, Mörkinni 6, 108 Reykjavík.
Við hittumst 1x í viku í 2 klst í senn þar sem kennari fer yfir kennsluefni vikunnar skref fyrir skref.
Forkröfur námskeiðinsins:
Hafa lokið grunnnámskeiði hjá Gítarskólinn.is eða:
Geta stillt gítarinn.
Kunna eftirtalna hljóma (eða sem flesta):
Em, Am, C, G, D, E, F, A, Dm, B7, C7, A7, Am7, E7, G7.
Geta notað gítarnögl og spilað með fingrunum.
Þekkja helstu takttegundir sbr. 4/4, 3/4 og 6/8.
Á námskeiðinu höldum við áfram sem frá var horfið frá gunnnámskeiðinu. Við skoðum gítarhálsinn og lærum öll helstu þvergripin og fleiri hljóma sem er gott að kunna. Sú kunnátta gerir okkur kleyft að spila nær öll lög sem okkur dettur í hug.
Á námskeiðinu:
- Gerum æfingar og spilum lög.
- Við lærum fullt af nýjum hljómum.
- Við lærum algengar hljómaraðir í vinsælum lögum.
- Við spilum vinsæl lög og ræðum spilatækni sem gott er að hafa í huga miðað við hvert lag.
- Við lærum að krydda gítarleikinn okkar með bassatónum og „ghost“ nótum.
AÐGANGUR AÐ KENNSLUEFNI OG AUKAEFNI
Nemendur fá aðgang að lokuðu vefsvæði / appi þar sem kennsluefni og aukaefni verður sett inn á.
Eftir hvern tíma færðu aðgang að kennsluefni á læstu vefsvæði með æfingum sem þú getur farið yfir og æft þig á milli tíma.
VERKLEGAR ÆFINGAR
Í hverjum tíma gerum við æfingar til að styrkja það sem við höfum lært. Eitt af því mikilvægasta í tónlist er að spila með öðru fólki og við munum spila mikið saman og kennari ganga á milli og leiðbeina nemendum með tækni ofl. eins og þurfa þykir. Endurgjöf frá kennara (feedback) og t.d. hægt að leiðrétta einhver tækniatriði áður en etv slæmir vanar ná að setjast að hjá þér.
SPURT & SVARAÐ
Í kennslutímum er nægt svigrúm til að spyrja spurninga og fá svör við þeim spurningum sem þú kannt að hafa.
AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ SKRÁ MIG ?
Kennari á námskeiðinu er Bent Marinósson, hann hefur yfir 20 ára reynslu í gítarkennslu. Honum er það mikið í mun að þú náir árangri.
Námskeiðið er yfirgripsmikið. Á námskeiðinu er farið yfir marga hljóma, alls um 30 talsins. Þetta eru allir þeir helstu í „opinni stöðu“, þeas „vinnukonugripin“ ásamt fleiri nytsamlegum hljómum. Við lærum að nota capo einnig. Við förum mikið yfir áslátt og takttegundir, hvernig við getum nýtt okkur hljómana til að búa til fallegan, hljómfagran og taktvísan gítarleik.
Gott aðgengi að kennsluefni: Þú getur nálgast aukaefni og æfingar hvenær sem er á námskeiðinu á milli gítartíma og þannig æft þig þegar þér hentar.
HVAR OG HVENÆR ?
Námskeiðið verður haldið hjá Ferðafélagi Íslands, Mörkinni 6, 108 Reykjavík.
Þriðjudag 11. mars, kl. 18:30 – 20:30
Þriðjudag 18. mars, kl. 18:30 – 20:30
Þriðjudag 25. mars, kl. 18:30 – 20:30
Þriðjudag 1. apríl, kl. 18:30 – 20:30
Lágsmarksþátttaka eru 5 manns
Hámark eru 16 manns
Ath. flest stéttarfélög endurgreiða stóran eða allan hluta námskeiðsgjaldsins. Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi.