Næstu námskeið í boði

Grunnnámskeið - Gítarinn frá grunni 1. - 22. september

Langar þig að læra á gítar eða taka upp þráðinn aftur? Á þessu námskeiði lærir þú yfir 30 hljóma, færð góðan takt og getur byrjað að spila einföld lög með öðrum. Kennslan er skýr og markviss, með áherslu á raunverulega spilamennsku svo þú finnir strax framfarir og meira sjálfstraust í gítarleik.

Framhaldsnámskeið 2. - 23. september

Framhaldsnámskeiðið er fyrir þig sem kannt helstu grunnhljómana og ert tilbúin/n að taka næsta skref í gítarleiknum. Við vinnum markvisst með takt, hljóma, spilatækni og samspil með það að markmiði að láta gítarinn hljóma betur, öruggari og tónlistarlegri. Þetta er tilvalinn vettvangur ef þú hefur klárað grunnnámskeið eða spilað aðeins heima við, og vilt núna ná meira færni, hæfni og aukinni gleði út úr spilamennskunni.

Nýtt hjá gítarskólanum: TÓNSMIÐJAN

Vantar þig aðhald og ný lög til að spila?

Tónsmiðjan er ný lausn fyrir fullorðna gítarleikara sem vilja halda dampi. Í stað þess að mæta á ákveðnum tíma, færðu nýtt efni í hverri viku beint heim í stofu.

  • ✅ Nýtt lag og æfing vikunnar

  • ✅ Skýr kennslumyndbönd,  PDF skjöl og undirspil til að æfa sig að spila með

  • ✅ Við hittumst reglulega saman og spilum saman lögin sem við höfum verið að æfa

  • ✅ Aðgangur að samfélagi gítarleikara
  •  
  • ✅ Engin pressa – þú spilar þegar þér hentar

Netnámskeið í boði

Netnámskeiðið okkar er fullkomin lausn fyrir þá sem vilja læra á gítar á sínum forsendum, án þess að vera bundnir við fasta tíma. Þú færð aðgang að heildstæðu námsefni sem samanstendur af vönduðum kennslumyndböndum, skýringum í texta og gagnlegum viðhengjum sem leiða þig áfram skref fyrir skref í gegnum námið. Það besta er að þú hefur fulla stjórn á hraðanum og getur horft, æft og lært nákvæmlega þegar þér hentar – hvort sem það er í rólegheitum heima á kvöldin eða þegar stund gefst í amstri dagsins.

Einkatímar í boði

Einkatímar okkar bjóða upp á persónulega og markvissa leiðsögn í gegnum netið, þar sem við notum sérhannaðan hugbúnað til að tryggja bestu mögulegu upplifun og hljóðgæði í tónlistarkennslu. Þessi valkostur veitir hámarks sveigjanleika, því við sníðum tímasetningar kennslunnar að þínum aðstæðum hverju sinni. Þetta er því kjörinn kostur fyrir fólk í vaktavinnu, með óreglulegan vinnutíma eða einfaldlega þá sem vilja spara ferðalagið og fá kennarann heim í stofu í gegnum skjáinn.

GÍTARBLOGGIÐ

B.B. King 100 ára

Í dag, 16. september, hefði Riley B. King, betur þekktur sem B.B. King, orðið 100 ára. Hann fæddist árið 1925 í Mississippi USA og á æskuárum hans mótaði blúsinn og gospel tónlist líf hans. Hann byrjaði að spila á götum og í kirkjum en síðar flutti hann til Memphis Tennesee, þar sem tónlistarferill hans tók að blómstra.

Meira »

15 mínútna æfingaráætlun fyrir fullorðið upptekið fólk

Í annasömum hvunndeginum erum við eins og fjúkandi plastpoki sem berst eftir vindinum út og suður! Það getur sannarlega verið erfitt að finna tíma til þess að æfa okkur á gítarinn. Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að það þarf ekki skrilljón klukkutíma á dag til að bæta þig! Gott skipulag á æfingartíma og með einbeittum 15 mínútum á dag getur skipt sköpum. Þú heldur fingrunum liprum, byggir upp vöðvaminni og allt verður betra 🙂

Meira »