Gítartími 1

Kæri gítarleikari!

Velkominn á gítarnámskeið Gítarskólans. Námskeiðið er 12 vikur og við munum byrja á grunnatriðum í gítarleik. Vertu endilega ófeiminn við að láta í þér heyra, annað hvort með að skrifa í athugasemdaboxið hér að neðan eða senda tölvupóst á gitarskolinn@gmail.com.

Markmið tímans

  • Læra nöfnin á strengjunum
  • Læra a stilla gítarinn
  • Mynda tón
  • Fyrsti hljómurinn


Nöfn á strengjunum

Nótnaheiti Númer strengs
E (dýpsti og þykkasti strengurinn) 6. strengur
A 5. strengur
D 4. strengur
G 3. strengur
B 2. strengur
E 1. strengur



Sjá nánar á þessu myndbandi:


Leiðir til að muna nöfnin á strengjunum

Ýmsar leiðir eru til að muna nöfnin á strengjunum, ein leið er að búa til setningar sem auðvelt er að muna. Hér eru dæmi:

Eddie
Ate
Dynamite
Good
Bye
Eddie!
Einar
Ari
Daðason
Gat
Bara
Ekkert
Búðu til þína eigin setningu:
E
A
D
G
B
E


Að stilla gítarinn

Er eitt af því fyrsta sem við sem gítarleikarar þurfum að kunna. Það er fátt ömurlegra en falskt hljóðfæri.

Hérna er myndband með hljóðum fyrir alla strengina, E-A-D-G-B-E, nú þegar þú kannt nöfnin á strengjunum þá geturu reynt að herma eftir hljóðunum. Ef það gengur illa, þá mæli ég með að þú kaupir stillitæki (tuner) í næstu hljóðfæraverslun.


Gítarinn stilltur eftir stillitæki (Tuner)

Hér er farið yfir hvernig þú notar stillitækið rétt. Eins og réttilega er bent á í myndbandinu, þegar nótan er of há þá borgar það sig að slaka á tóninum niður fyrir rétta nótu og strekkja upp í hana aftur.


Að mynda tón

Mikilvægt er að þrýsta á strengina rétt, að nota fingurgómana en ekki flatan fingur. Farið er yfir þau atriði í þessu myndbandi.


Fyrstu hljómarnir

Hér er farið yfir grunnatriði við spilun hljóma. Mjög mikilvægt, eins og hann bendir á, að spila hljómana eina nótu í einu fá góðan hljóm í hverja nótu fyrir sig.


Hér er farið yfir nánari atriði tengt hljómaspili, meira út “dauða” tóna ofl.


Jæja þá er fyrsta gítartímanum lokið. Farðu vel yfir þau atriði sem hafa verið kynnt hér í dag og við höldum áfram að viku liðinni. Ef þú ert með spurningar eða athugasemdir, vinsamlegast notaðu athugasemdaboxið hér að neðan eða sendu tölvupóst á gitarskolinn@gmail.com

Twitter Digg Delicious Stumbleupon Technorati Facebook

No comments yet... Be the first to leave a reply!