Gítartími 6
Í þessum gítartíma förum við yfir nóturnar á gítarhálsinum og leggjum sérstaka áherslu á E og A strengi.
Að þekkja gítarhálsinn, og þá sérstaklega E og A strengi, er nauðsynlegt til að vita hvað maður er að spila þegar kemur að þvergripum og svokölluðum „power chords“, sem við munum skoða í næsta tíma.
Í tímanum er það sýnt hvernig, með auðveldum hætti, er hægt að finna út nótnanöfnin á öllum hálsinum. Aðeins þarf að muna nótnastafrófið: A-B-C-D-E-F og vita að það eru lítil bil á milli B-C og E-F.
Gítartími 6 – gítarhálsinn
Tónastöðin styður við bakið á okkur við framleiðslu þessa efnis og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Kíktu endilega í Tónastöðina í Skipholti 50D eða á netinu á Tonastodin.is.



24.02, 2011 








No comments yet... Be the first to leave a reply!