Gítartími 2

Velkomin/n í gítartíma 2

Í fyrsta tíma fórum við yfir nöfnin á strengjunum, hvernig á að stilla gítarinn, mynda tón og fyrsta hljómana. Nú höldum við áfram sem frá var horfið. Einnig er búið að fara yfir algeng vandamál við staðsetningu putta í hljómaspili. Vonandi gekk vel að fara yfir efni fyrsta tímans.

í þessum tíma munum við einbeita okkur að læra fleiri hljóma. Þú ættir að kunna núna D dúr, E dúr og G dúr. Í lok tímans ættiru að kunna átta algengustu grunnhljómana.

Fleiri hljómar: C dúr og G dúr



Fleiri hljómar: Emoll, Dmoll og Amoll




Nú þegar hingað er komið ættir þú að kunna átta helstu grunnhljómana. (D, E, G, C, A, Em, Dm og Am).

G-C-D

Hér verður farið í algenga hljómaröð s.s. G-C-D-C (og svo endurtekið frá G aftur) í mismunandi útgáfum


Verkefni

Æfðu þig vel á þessum hljómum sem nú eru komnir og það ætti að vera veglegt verkefni næstu vikuna. Gott er að æfa sig að skipta á milli hljóma.

Prófaðu þessar hljómaraðir (slá t.d. hvern hljóm 4x)

Táknin ||: ……. :|| þýða að það sem er þarna á milli skuli vera endurtekið.

||: G – Em – Am – C :||
||: C – Am – Em – G :||
||: G – C – D :||

Vakni spurningar, endilega vertu í sambandi í gegnum formið hér að neðan eða með því að senda tölvupóst á gitarskolinn@gmail.com.

Skráning á námskeið

Sértu ekki búin/n að skrá þig, gerðu það endilega með því að fylla út formið þessari síðu.

Twitter Digg Delicious Stumbleupon Technorati Facebook

No comments yet... Be the first to leave a reply!