Gítarleikari vikunnar: Adrian Smith
Adrian Frederik Smith ( fæddur 27. febrúar 1957 ) er helst þekktur fyrir að spila á gítar í hljómsveitinni Iron Maiden.
15 ára gamall stofnaði Adrian og vinur hans Dave Murray hljómsveitina Urchin hljómsveitin spilaði til að byrja með Cover lög og tróðu upp í skólum og skemmtistöðum. Dave Murray yfirgaf svo hljómsveitina og gekk til liðs við Iron Maiden stofnaða af bassaleikaranum Steve Harris. Nokkru síðar tóku meðlimir hljómsveitarinnar sig til og skrifuðu sitt eigið efni. Ekki varð mikið úr hljómsveitinni en Adrian gekk til liðs við Iron Maiden 1980 og spilaði á annari plötu hljómsveitarinnar Killers. Adrian og Dave spila oftast saman tvöfaldar “lead” línur sem einkennt hefur stíl Iron Maiden frá því hann gekk til liðs við hljómsveitina.
Með Iron Maiden samdi Adrian þó nokkur af slögurum hljómsveitarinnar meðan annars Wasted Years, Moonchild og The Evil That Men Do. Adrian Smith hefur í gegnum tíðina sungið bakraddir en í einu lagi skipti hann um hlutverk við söngvarann Bruce Dickinson sem tók þá að sér bakraddir á meðan Adrian söng lagið Reach Out. Lagið var þó ekki gefið út á hljómplötu með sveitinni en var skrifað á B-hlið slagarans Wasted Years árið 1986.
Adrian hætti í Iron Maiden árið 1990 og spilaði á sóloplötu Michael Kiske söngvara Helloween. Seinna stofnaði hann hljómsveitina The Untouchables sem breytti nafninu svo í Psycho Motel en hljómsveitin gaf út plöturnar State of Mind (1996 ) og Welcome to the Worl (1997)
Adrian Smith spilaði einnig á sólóplötur Bruce Dickinson Accident of Birth og Chemical Wedding. En ásamt Bruce fór Adrian í tónleikaferðalög og gengu þeir félagarnir aftur til liðs við hljómsveitina Iron Maiden og gáfu út plötuna Brave New World árið 2000. Iron Maiden hélt þá eftir þeim sem fenginn hafði verið í skó Adrians og voru nú með 3 gítarleikara þá Dave Murray, Janick Gers og Adrian Smith. Eftir að Adrian gekk aftur til liðs við hljómsveitina fóru Iron Maiden að sækja í sig veðrið aftur en Adrian Smith hefur mjög sérstakan spilunarstíl sem hann kýs að kalla “heavy picking” en þar sem hefðbundnir gítarleikarar nota hammer-ons, pull-off og slide mikið í sólóunum sínum þá hefur Adrian alltaf verið meira fyrir að pikka sem flestar nótur sem gefur lead-línum og sólunum hans öðruvísi einkenni en hinna gítarleikara hljómsveitarinnar.
Adrian Smith segir að besti gítarinn sinn sé Gibson Les Paul sem hann keypti á 235 pund þegar hann var 17 ára gamall. Hann hefur í gegnum tíðina spilað mikið á Gibson gítarana Explorer og SG ásamt Les Paul en hefur einnig mikið notað Ibanez Destroyer og Fender Stratocaster og Telecaster. Í dag notast Adrian mest við signature útgáfur af Jackson San Dimas Dinky en það eru 15 ár síðan hann var síðast samningsbundinn gítarframleiðanda.
Höfundur:Arnar Geir Kárason.
Þegar hann er ekki að hlusta á Iron Maiden eða skrifa PHP kóða þá er hann ýmist að eyða tíma með fjölskyldunni eða stunda ljósmyndun að kappi. Hér má smá myndir eftir hann, ArnarG.is.



24.02, 2011 









No comments yet... Be the first to leave a reply!